Kæru viðskiptavinir, La Boutique Design fagnar fimm ára afmæli og viljum við því halda almennilega upp á þessi farsælu ár með ykkur.
Á þessum degi, fyrir 5 árum síðan, opnuðum við fyrir vefsíðu okkar. Við byrjuðum smátt og einungis með vörur í forpöntun. Okkar fyrstu viðskiptavinir muna mögulega eftir lagerhúsnæði okkar á Grensásveginum en það var svo í febrúar 2023 sem við opnuðum verslun okkar að Mýrargötu 18. Við höfum jafnt og þétt aukið við þjónustuna og í dag erum við með yfir 10000 einstakar vörur fyrir heimili með karakter. Við erum ákaflega þakklát fyrir stuðning ykkar og viljum því bjóða ykkur afmælis-afslátt.
Við bjóðum ykkur 20-70% afslátt af flestum þeim vörum sem við eigum til á lager og við bjóðum vörur Birgitte Munck og Interior Design á 10% afslætti. Við erum sömuleiðis með 15% afslátt af þeim vörum sem ekki eru til á lager og fara í pöntun - þær munu berast til landsins í júní.
Dagana 16., 17. og 18. maí frá kl. 11:00-18:00 höfum við lagersölu þar sem verður mikið úrval af vörum sem aldrei áður hafa verið til sýnis hjá okkur. Ekki missa af þessu einstaka tækifæri til þess að koma og sjá allt úrvalið hjá okkur í eigin persónu og á glæsilegum afslætti.