Zago Dagar✨15-50% afsláttur af öllum vörum frá Zago til 21. júní
Við flytjum inn mest af okkar vörum frá fyrirtækinu Zago og við erum stolt af því að dreifa vörum þeirra á Íslandi. Við erum ótrúlega ánægð með að Zago sé hluti af fjölskyldu okkar og við heyrum reglulega í ánægðum viðskiptavinum sem eiga Zago sófa, borðstofuborð, hægindastóla o.fl.
Zago gaf nýlega út nýja vörulínu og hefur boðið okkur magnaðan afslátt af nokkrum vörum þeirra úr fyrri línum. Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á 15-50% afslátt af öllum vörum frá þeim. Við eigum fjölbreyttar vörur á lager og við munum fá til okkar sérpantanir ykkar í ágúst. Vinsamlegast athugið að takmarkað magn er til á lager af þeim vörum sem við bjóðum mestan afslátt af.
Zago vörumerkið varð til árið 2005 í Annecy, hjarta frönsku Alpanna. Leiðarljós þeirra hefur frá upphafi verið að bjóða upp á hágæða húsgögn í stílhreinni og glæsilegri hönnun sem á rætur sínar í náttúruna og umhverfið sem umlykur það. Kjarni þessa fallega vörumerkis er tímalaus hönnun, hreinar línur, vandað efnisval & frágangur og Zago vex og dafnar frá degi til dags undir þessum formerkjum.
Endilega kíktu í vefverslun okkar eða komdu til okkar í verslun okkar að Mýrargötu 18., 101 Reykjavík. Ekki láta þennan afslátt af vandaðri og vistvænni hönnun framhjá þér fara.